Ertu á leið á námskeið eða jafnvel í lengra nám? Kannaðu rétt þinn á styrk frá Ríkismennt SGS
Ríkismennt SGS er þróunar-og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS). Sjóðurinn tók formlega til starfa 1. júní 2005.
Hvernig er sótt um styrk?
Einstaklingar sækja um styrk á þar til gerðum eyðublöðum hjá viðkomandi stéttarfélagi sem sér um afgreiðslu í umboði Ríkismenntar.
Stéttarfélög, stofnanir og aðrir vinnuveitendur sækja um styrk til stjórnar með því að senda bréf þar sem fram koma helstu upplýsingar vegna viðkomandi fræðsluverkefna.